Allri málsmeðferð óbyggðanefndar er lokið en hér er gerð grein fyrir því hvaða reglur giltu um málskostnað aðila fyrir nefndinni. Upplýsingar um málskostnað fyrir dómstólum eiga eftir sem áður við um dómsmál sem enn eru í gangi eða kunna að verða höfðuð.
Ríkissjóður greiðir kostnað
Kostnaður vegna starfa óbyggðanefndar greiddist úr ríkissjóði. Þetta gilti bæði um rekstrarkostnað nefndarinnar og nauðsynlegan kostnað einstaklinga og lögaðila vegna hagsmunagæslu fyrir óbyggðanefnd, að teknu tilliti til neðangreindra skilyrða.
Skilyrði fyrir greiðslu málskostnaðar
Óbyggðanefnd úrskurðaði um kröfur aðila vegna kostnaðar. Við þann úrskurð gátu eftirfarandi atriði skipt máli, sbr. 17. gr. þjóðlendulaga.
- Var um nauðsynlegan kostnað að ræða?
- Var aðstoð lögmanna og annarra sérfræðinga samnýtt af aðilum með svipaða og samrýmanlega hagsmuni?
- Hvert er sanngjarnt og eðlilegt endurgjald fyrir hagsmunagæslu í málinu?
Aðilar geta þurft að greiða málskostnað
Óbyggðanefnd var heimilt að gera aðila að bera málskostnað sinn og gagnaðila að nokkru eða öllu leyti, teldi hún málatilbúnað hans gefa tilefni til slíks, svo sem ef kröfur væru hafðar uppi að tilefnislausu.
Málskostnaður fyrir dómstólum
Kjósi aðili að skjóta máli sínum til dómstóla að fengnum úrskurði óbyggðanefndar og innan tilskilins frests gilda hins vegar ákvæði laga um meðferð einkamála, nr. 91/1991, um ákvörðun málskostnaðar.