Erna Erlingsdóttir fæddist árið 1975. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1994, BA-prófi í íslensku frá Háskóla Íslands 1999, MA-prófi í íslenskum bókmenntum frá HÍ 2010, viðbótardiplóma í nytjaþýðingum frá HÍ 2020 og viðbótardiplóma í opinberri stjórnsýslu frá HÍ 2023. Einnig nam hún þýskar bókmenntir og almenna bókmenntafræði við háskólann í Leipzig í Þýskalandi 1999–2000.
Árin 2002–2018 vann Erna hjá skrifstofu Alþingis við útgáfu þingskjala. Hún hefur m.a. einnig unnið sjálfstætt við yfirlestur, ritstjórn o.fl. samhliða ýmsum öðrum störfum síðan 1997.
Erna tók til starfa á skrifstofu óbyggðanefndar í apríl 2018 sem ritari. Hún var skrifstofustjóri hluta ársins 2020 og hefur gegnt því starfi aftur frá 1. október 2022.
Netfang: erna.erlingsdottir[hjá]obyggdanefnd.is